Ættingjar skjaldbakna
Nánustu ættingjar skjaldbakna, sem eru uppi á okkar dögum, eru önnur skriðdýr. Öll eru þau með beinagrind, hrygg og hreistraða húð. Þau treysta á umhverfið til að ylja sér og eru algengust á hlýjum slóðum. Skriðdýr verpa eggjum með vatnsheldu skurni. Helstu ættbálkar núlifandi skriðdýra eru skjaldbökur, eðlur og slöngur, krókódílar og flatmunnar. Skjaldbökur eru mjög ólíkar öðrum skriðdýrum, þær eru ekki með nein op ofan á hauskúpunni, þar sem önnur skriðdýr hafa tvö op.
Fornskjaldbökur
Vísinsamenn greinir á um það frá hvaða dýrum skjaldbökur hafa þróast. Elsta skjaldbaka sem vitað er um kallast Proganochelys og var uppi fyrir um 220 milljónum árum, en þessi fornbaka var að líkindum ekki forfaðir skjaldbakna nútímans. Þær hafa að öllum líkindum þróast frá stofni sem er kallaður Casichelydia, hún var uppi fyrir 208 til 144 milljón árum. Fornskjaldbökur lifðu samtímis trölleðlum, þær voru feiknastór skriðdýr sem voru uppi þangað til fyrir 65 milljón árum, þær dóu allar út. Gagnstætt trölleðlum héldu margar skjaldbökutegundir velli og eru enn á ferli.