Vistkerfi,
Margar landskjaldbökur af svæðinu umhverfis Miðjarðarhaf teljast til ættkvíslarinnar Testudo (sem þíðir skjaldbaka á Latínu). Testudo-skjaldbökur hafa flestar fimm klær og allar tegundir nema skjaldbakan, Testudo horsefieldi hafa óljósar hjarir á undirskelinni. Flest þessi dýr lifa á þurrum svæðum, en sum, t.d evrópska fenjaskjaldbakan og serkjadeiglan, lifa þó í vatni. Miðjarðarhafsvæðið er þéttbýlt og mannabyggð ógnar afkomu margra skjaldbakna á þessum slóðum. Þeim stafar hætta af eyðileggingu búsvæða, mengun, truflun, eldsvoðum að sumarlagi og dýrasöfnun fyrir gæludýramarkaðinn.
Allar tegundir skjaldbaka eru nú í hættu vegna breytinga á strandlengjum sem þær nýta til að verpa eggjum sínum, auk ofveiði. Skjaldbökur geta búið í hafinu (sæskjaldbökur), í fersku vatni og á landi (landskjaldbökur). Sumar skjaldbökur eru í útrýmingarhættu. t.d stærsta skjaldbaka í heimi, Leðurskjaldbakan er í mikilli útrýmingarhættu og hefur hún horfið af mörgum stöðum í heiminum. Sumar skjaldbökur eins og Evrópska fenjaskjaldbakan er eina vatnabakan sem útbreidd er í Evrópu. Hún er mannfælin alæta sem lifir i lygnu vatni með leðjubotni og drúpandi gróðri. Márabakan finnst víðast hvar á Miðjarðarhafssvæðinu og í Austur-Evrópu. Á hinum svalari nyðri hlutum búsvæðisins leggjast skjaldbökurnar í dvala yfir veturinn. Á hlýrri svæðum liggja skjaldbökurnar stundum í dvala á heitasta tíma sumarsins. Márabakan er ein vinsælasta skjaldbakan á evrópska gæludýramarkaðinum, og mörg dýr eru hirt úti í náttúrinni. Það hafa verið sett lög til að hafa stjórn á þessum viðskiptum. Aðrar skjaldbökur eins og t.d. Egyptabakan lifir í eyðimörkum, hún skríður í holur til að forðast hitann, Egyptabakan er mjög smávaxin, hún hefur gulleita skel og broddóttar hreisturflögur á hælunum. Beltabakan liggur í dvala að vetrarlagi á svalari svæðum. Grikkjabakan lifir á þurrum stöðum víða í Suður-Evrópu, frá Spáni til Tyrklands, hún lifir líka á ýmsum eyjum í Miðjarðarhafinu (eins og margar aðrar skjaldbökur). Grikkjabakan liggur í dvala frá október og fram í apríl.